ágúst 2006


Íslendingar í Karlsruhe

Þessi síða er hönnuð með það að markmiði að kynna fyrir íslenskum námsmönnum möguleikan á því að stunda háskólanám sitt, að hluta til eða frá grunni, í Verkfræði eða Raunvísindum við Háskólann í Karlsruhe í Þýskalandi. Margir hafa áhuga á því að stunda nám í Þýskalandi og er von okkar að þessi síða muni hjálpa fólki að skilja betur í hverju námið felst og hvað þurfi að hafa í huga áður en nám hér er hafið. Það er von okkar að þessi síða geti svarað þeim spurningum sem upp koma áður en tekin er ákvörðun um að flytjast til Karlsruhe.

Ef einhverjar frekari spurningar koma upp ekki hika við að hafa samband við umsjónarmenn þessarar síðu og þeir munu glaðir hjálpa ykkur.