Leišin gegnum Frankfurt Hahn
Iceland Express flýgur reglulega til Frankfurt Hahn, sem er lítill flugvöllur í útjaðri Frankfurt. Verðið er misjafnt eftir sætum og tilboðum. Til að komast áleiðis til Karlsruhe er hægt að gera eftirfarandi:
Taka lest:
Þar sem að Frankfurt Hahn er svolítið út úr borginni þarf að taka rútu til Frankfurt Haubtbahnhof (í. aðallestarstöðvar Frankfurt), eða til Heidelberg, og þaðan að taka lest áfram til Karlsruhe. Þetta er frekar einfaldur möguleiki þar sem að rúta stoppar beint fyrir utan Terminal 2 á flugvellinum og stoppar svo á lestarstöð þar sem hægt er að kaupa miða áfram til Karlsruhe.
Fara með bíl:
Einnig er hægt að leigja bíl á Frankfurt flugvelli og keyra suður til Karlsruhe. Þetta er töluvert lengri akstur en að fara frá Frankfurt Mainz, eða rúmir 2 tímar. Hér fyrir neðan eru akstursleiðbeiningar teknar úr Autoroad 2007.
Time Km Instruction For Toward SUMMARY |
