Leišin gegnum Frankfurt Mainz

Flugvöllurinn í Frankfurt Mainz er einn stærsti flugvöllur í Evrópu og flýgur Icelandair þangað daglega allt árið um kring. Ef pantað er tímanlega er hægt að fá flug fram og til baka fyrir allt niður í 20.800kr. fyrir skatta. Frankfurt er rétt um 100km norður af Karlsruhe og hægt er að koma sér áfram þangað með því að taka lest eða keyra:
Lest:
Vél Icelandair lendir á Terminal 2 á flugvellinum. Eftir að búið er að sækja farangur þarf að koma sér yfir á Terminal 1. Sú leið er vel merkt með skiltum. Í Terminal 1 er lestarstöðin (merkt sem Bahnhof) og þar er hægt að kaupa miða með hraðlest áleiðis til Karlsruhe ásamt því að fá upplýsingar um brautarpall og tímasetningar.
Bíll:
Hægt er að leigja bíl á flugvellinum. Þegar keyrt er út frá flugvellinum skal fylgjast vel með skiltum sem benda á hraðbraut A.5 merkt Basel. Þessum vegi skal fylgja. Þetta er rétt rúmur klukkutíma akstur suður frá Frankfurt og skiptir mestu að vera vakandi fyrir skiltum sem munu vísa vegin til Karlsruhe. Eftirfarandi leiðbeiningar eru fengnar úr Autoroad 2007.
Time - Km - Instruction - For - Toward 09:00 0,0 Depart Frankfurt-Terminal 2 on Local road(s) (East) 0,3 km SUMMARY |
