ágúst 2006

Íbúðarmál

Það getur verið erfitt að finna íbúð eða herbergi í Karlsruhe þegar skólinn er að byrja. Í skólanum eru um 30.000 nemendur en aðeins um 3000 stúdentaíbúðir. Langflestir leigja sér þ.a.l. herbergi í íbúð með öðrum þar sem er sameiginlegt eldhús, stofa og baðherbergi.

Margir eru um hítuna svo það skiptir miklu máli að hefja leit snemma og setja kraft í hana. Ekki hika við að hafa samband við umsjónarmenn þessarar síðu og spurjast fyrir um íbúðarmöguleika því e.t.v.  vita þeir um herbergi eða íbúðir sem eru á lausu.

Eftirfarandi síður eru hjálplegar við leitina.