ágúst 2006

Lífið í Karlsruhe

Karlsuhe Þýskalandi

Karlsruhe er lítil vinaleg borg í Baden Württemberg héraði í Þýskalandi. Í henni búa um 300.000 manns. Hún liggur um 100km vestur af Stuttgart og um 150km sunnan við Frankfurt. Hægt er að segja að hún sé staðsett í miðri Evrópu þar sem stutt er að fara í helstu lönd álfunnar frá henni. Frakkland liggur örfáum kílómetrum vestan við hana. Sviss og Austurríki eru fyrir sunnan og Ítalía í rétt um 500 kílómetra fjarlægð. Þar sem að Karlsruhe liggur svona sunnarlega er veðurfar mjög gottt. Borgin er næstheitasta borg Þýskalands yfir sumartíman, með u.þ.b. 30 gráðu hita yfir júní og júlí mánuði. Veturnir eru mjög stuttir og þar festir sjaldan snjó.

Mikið er um útlendinga og þá sérstaklega námsmenn í Karlsruhe. Fólkið er því vant því að eiga samskipti við útlendinga. Samgöngur eru með því besta sem þekkist í Þýskalandi og eru Karlsruhebúar mjög stoltir af innanbæjar lestarkerfi sínu, það er því lítið mál að komast ferðar sinnar hvort sem það er með lestum eða hjólandi. Miðbærinn er vinalegur og fullur af mannlífi. Einnig er höll niðri í miðbæ með risastórum hallargarði sem er opinn almenningi og þar flykkist fólk á sumrin í sólbað og leiki.