ágúst 2006

Hvað þarf að gera

Umsóknarfrestur rennur út 15.janúar fyrir sumarönn og 15.júlí fyrir vetrarönn.

Til að sækja um skólavist í gegnum samninginn þarf að fylla út eyðublað . Þessu eyðublaði er best að koma á tengilið Íslendinga við Háskólann í Karlsruhe á Íslandi. Sá tengiliður mun sjá um að koma umsókninni til Háskólans. Ykkur mun svo berast staðfesting á inngöngu í pósti nokkrum vikum seinna.

Núverandi tengiliður Háskólans í Karlsruhe á Íslandi er Páll Valdimarsson Vélaverkfræðiprófessor við Háskóla Íslands. Hann hefur undanfarna áratugi hjálpað íslenskum nemendum við að hefja framhaldsnám í Karlsruhe og veit manna best um hvað málið snýst. Heimasíðu hans má finna hér og hægt er að senda honum tölvupóst á netfangið pallv@hi.is .

Ath. Að afrit af B.Sc skírteini þarf að fylgja umsókninni eða útprentun á námsferli ef þið ætlið ykkur að fá metið það sem þið hafið hingað til gert, og þarf þetta að vera á ensku eða á þýsku. Einnig væri gott að skila inn staðfestingu á niðurstöðu úr tungumálaprófi (TestDAF eða DSH), en það er ekki skilyrði fyrir inngöngu í skólann. Sjá nánar um tungumálakröfur hér.