Nám í Karlsruhe
Margir Íslendingar hafa lagt leið sína til Karlsruhe síðustu áratugi og stundað þar nám, þá aðallega í Verkfræði eða Arkitektúr. Samningur er í gildi milli Háskóla Íslands og Háskólans í Karlsruhe sem gerir nemendum sem hafa lokið B.Sc prófi í Rafmagns- og Tölvuverkfræði eða Véla- og Iðnaðarverkfræði frá HÍ kleift að taka mastersgráðu sína í Karlsruhe. Einnig hafa margir tekið fullt nám eða að hluta í Byggingarverkfræði, Arkitektúr og Hagfræði við skólann.
Náms- og próffyrirkomulag
Námið hér í Karlsruhe er töluvert öðruvísi en Íslendingar hafa fengið að venjast. Nánast engin verkefna- eða heimadæmaskil eru yfir önnina og fer nánast allt námið fram í fyrirlestrarformi. Annirnar skiptast í vetrar- og sumarönn. Vetrarönnin byrjar í lok október og lýkur um miðjan febrúar en þá hefst prófatímabil. Sumarönnin byrjar í lok apríl og lýkur í lok júlí, þá hefst annað prófatímabil. Prófin eru annaðhvort skrifleg eða munnleg og yfirleitt eru munnlegu prófin tekin þegar hver og einn er tilbúinn til þess en skriflegu prófin hafa fasta prófdagsetningu (sjá nánar undir Mastersnám í verkfræði).
Skólagjöld
Háskólinn í Karlsruhe tók upp skólagjöld sem samsvarar 500 evrum á önn í mars 2007. Að auki þarf að greiða skráningargjald upp á 100 evrur fyrir hverja önn. Íslendingar sem skrá sig í skólan þurfa því að greiða sem nemur 600 evrum á önn. LÍN lánar fyrir þessum skólagjöldum.
