ágúst 2006

Masternám

Í gildi er samningur milli Háskóla Íslands og Háskólans í Karlsruhe sem gerir nemendum sem lokið hafa B.Sc prófi í Véla- eða Iðnaðarverkfræði eða Rafmagns- eða Tölvuverkfræði frá Hásóla Íslandskleift að taka framhaldsnám sitt við Háskólan í Karlsruhe.

Mastersnám í Véla- eða Iðnaðarverkfræði
Mastersnámið í Véla- og Iðnaðarverkfræði er tekið eftir gamla þýska háskólanámskerfinu, svokallað Diplom-nám. Diplom náminu er skipt upp í Vordiplom og Hauptdiplom sem er að fullu sambærilegt við B.Sc og M.Sc nám. Verið er að breyta kerfinu á mörgum stöðum þar sem hægt er að taka B.Sc og M.Sc-nám en Diplom gráðan er mikils metin hér í Þýskalandi og eru Þjóðverjarnir mjög tregir til að skipta alveg yfir í Masterskerfið. Það skal tekið fram að Diplom-gráðan er alveg jafnt metin og Masters-gráðan af Verkfræðingafélaginu á Íslandi.

B.Sc-gráðan frá Íslandi er að fullu metin við Háskólann í Karlsruhe. Íslenskir nemendur þurfa síðan ekki að taka svokallað Praktikum, sem er 26 viku starfsreynsla sem þýsku nemendurnir þurfa að taka. Á móti þurfa Íslendingarnir að taka svokallað Studienarbeit, sem er svipað og B.Sc verkefni heima, þar sem að ekkert B.Sc verkefni er tekið í verkfræðinni á Íslandi.

Prófin í Véla- og Iðnaðarverkfræðinni eru annaðhvort skrifleg eða munnleg. Venjulega eru skyldufögin skrifleg og svo valfögin munnleg. Skyldufögin eru 6 talsins og þau verður að taka fyrst en byrja má á Studienarbeitinu samhliða þeim. Þegar studienarbeitinu og skyldufögunum hefur verið lokið má fara að taka valfögin, svokölluð Hauptfächer (aðalfög). Aðalfögin skiptast venjulega á 2 deildir (institute) að eigin vali og oftast eru valin 2-3 fög í hverri deild. Þegar hver einsaklingur er svo tilbúin til að fara í próf, pantar hann tíma og mætir svo í eitt munnlegt próf fyrir öll fögin í þeirri deild, það er því verið að prófa úr 2-3 kúrsum í einu og sama prófinu. Aðalprófin eru því 2, eitt fyrir hvora deild.

Eftir að aðalprófunum hefur verið lokið má byrja á Mastersverkefninu (diplom verkefni) sem tekur 6 mánuði.

Mastersnámið í heild sinni tekur venjulega tæp 3 ár hér en hægt er að gera þetta á skemmri tíma ef góð þýskukunnátta er til staðar eða ef það er mikill metnaður til þess að klára þetta á sem skemmstum tíma.

Mastersnám í Rafmagns- eða Tölvuverkfræði
Fyrirkomulag Mastersnáms fyrir Rafmagns- eða Tölvuverkfræðinema er örlítið frábrugðið því sem Véla- eða Iðnaðarverkfræði. Samningur gildir milli Háskóla Íslands og Háskólans í Karlsruhe sem hleypir íslendingunum frá HÍ beint inn í Mastersnám hjá Karlsruhe. Þeir meta B.Sc próf frá HÍ og geta því íslenskir nemar valið sér framhaldsbraut úr 17 mismunandi brautum innan rafmagnsverkfræðideildar Háskólans í Karlsruhe.

Kúrsar í Karlsruhe eru skilgreindir eftir fjölda svokallaðara semestenwochenstunda (SWS) þar sem að hver SWS jangildir 45mín í kennslu á viku. Flestir kúrsarnir í Rafmagnsdeildinni eru einungis 2 SWS en einnig eru nokkrir 3 SWS og 4 SWS kúrsar í boði. Til að ljúka Mastersgráðunni frá Háskólanum í Karlsruhe þarf að ljúka 10 SWS úr skyldufögum, 20 SWS úr valfögum og þar af þurfa 4 SWS að vera úr verklegum kúrs, svokallað Praktikum. Skv. samningnum þurfa Íslendingarnir ekki að ljúka 26 vikna vinnuskyldu, líkt og þjóðverjar þurfa að gera, en þeir þurfa að ljúka svokölluðu Studienarbeit (8 SWS) sem er sambærilegt við B.Sc verkefni. Auk þess þurfa íslendingar að taka 2-3 kúrsa úr grunnnáminu og einnig að ljúka 2 kúrsum sem eru viðskiptalegs eðlis.

Prófatímabilið er tvískipt. Langflest prófin úr Masternáminu eru 20 mínútna löng munnleg próf sem hægt er að taka á sérstökum prófatímabilum í upphafi og enda hvorrar annar fyrir sig, þ.e. 4 sinnum á ári. Oft eru prófessorar síðan með auka próftaermin og því er nánast hægt að taka munnlegu prófin þegar manni finnst maður vera tilbúinn í samráði við prófessora. Skriflegu prófin eru öðruvísi, þau er eingöngu hægt að taka í lok hvorrar annar og þá á fastri dagsetningu.

Námið er að mestu leyti kennt á fyrirlestrarformi þannig að lítið sem ekkert er um dæma- og verkefnaskil. Það er því prófað úr skilningi á efninu sem maður lærði í fyrirlestrum og upp úr bókunum. Það má því segja að vinnuálagið sé mun minna í Karlsruhe en verkfræðinemar eru vanir frá Háskóla Íslands.

Heimasíða Rafmagns- og Tölvuverkfræðideildar Uni-Karlsruhe er hér.