Tungumálakröfur
Til að geta útskrifast með Diplom- eða Master gráðu frá Háskólanum í Karlsruhe þarf að ljúka þýsku tungumálaprófi. Í rauninni er þessi krafa skilyrði fyrir inngöngu í skólann en þeir einstaklingar sem koma hingað í gegnum samninginn hafa fengið undanþágu og tekið prófið meðan á námi stendur. Þeir sem hyggja hinsvegar á að hefja nám frá grunni þurfa að klára prófið áður en þeir hefja námið og skila inn staðfestingu um það með umsókninni um skólavist.
Hægt er að velja á milli tveggja frekar mismunandi þýskuprófa. Annað heitir TestDAF og hitt er kallað DSH. Þessi próf eru bæði metin við inngöngu í hvaða háskóla í Þýskalandi sem er. Skólarnir gera hinsvegar mismunandi kröfur um lágmarkseinkun í prófunum. Inngangskröfur háskólans í Karlsruhe eru teknar fram í eftirfarandi umfjöllunum um sitthvort prófið.
TestDAF
TestDAF er samræmt þýskupróf sem hægt er að taka út um allan heim. Boðið er upp á að taka það á Íslandi á hverju vori og hausti við tungumálamiðstöð Háskóla Íslands. Einnig er hægt að undirbúa sig fyrir prófið með kennsluefni sem er einnig hægt að nálgast þar. Próftími um 5klst með hléum. Prófsvör eru svo send til Þýskalands þar sem unnið er úr niðurstöðunum og má búst við niðurstöðu 6-8 vikum eftir próftöku.
Prófinu er skipt upp í fjóra hluta, lesskilning, hlustun, ritun og talað mál. Engin málfræði er sérstaklega prófuð í þessu prófi
Einkunnir eru metnar á skalanum 3-5 þar sem allt fyrir neðan 3 er fall, en 5 er hæsta einkun. (samsvarar því að fá 80% rétt eða hærra). Sér einkunn er gefin fyrir hverja af þessum fjórum hlutum sem minnst er á fyrir ofan.
Háskólinn í Karlsruhe gerir kröfu um 4x4, þ.e. maður þarf að fá 4 eða hærra í öllum greinunum, lesskilningi, hlustun, ritun og tali.
Nánar á www.testdaf.de
DSH
DSH er annað samræmt tungumálapróf sem aðeins er hægt að taka hjá þýskum Háskólum. Hver og einn skóli býður upp á sérstök undirbúningsnámskeið fyrir DSH prófið. Prófkostnaður er er mismunandi milli skóla en kostar í Karlsruhe 50 evrur.
Prófinu er skipt í fimm hluta. Lesskilningur, hlustun, ritun og málfræði eru prófuð í 5klst löngu prófi (með hléum) en talað mál er prófað annaðhvort á sér próftíma eða samhliða undirbúningskúrsum fyrir prófið. Prófniðurstaða er komin 2-4 vikum eftir próflok.
Einkunnir eru gefnar í DSH skölum. Hægt er að fá DSH-1, DSH-2 eða DSH-3, þar sem DSH-3 er hæsta einkunn. Háskólinn í Karlsruhe gerir kröfu um DSH-2 fyrir inngöngu.
Nánar á heimasíðu útlendingastofu Háskólans í Karlsruhe hér.
