ágúst 2006

Háskólinn í Karlsruhe


Háskólinn í Karlsruhe er virtur á sviði raunvísinda, verk- og efnafræði. Hann er stofnaður árið 1825 og hefur getið af sér fræga fræðimenn líkt og Heinrich Hertz. Skólinn fékk árið 2006 svokallaðan "Elítu"-stimpil sem er gefinn til þeirra háskóla sem skara fram úr á ákveðnum sviðum. Einungis þrír háskólar hafa fengið þennan stimpil í Þýskalandi.

Háskólasvæðið er staðsett í miðbæ Karlsruhe og er stórt um sig. Um 30.000 nemendur stunda þar nám við ýmis fræði. Skólinn býður upp á stórt mötuneyti sem afgreiðir um 7000 manns á dag. Einnig er þar stórt og vel búið bókasafn með lesaðstöðu sem opið er allan sólahringinn. Háskólinn býður upp á mjög góða leikfimiaðstöðu þ.á.m. tækjasal, sundlaug og leikfimistíma en auk þess er hægt að skrá sig sérstaklega í hópíþróttir á vegum skólans, eins og t.d. fótbolta, tennis, kick-box o.m.fl.

Heimasíða Háskólans í Karlsruhe er hér.